Jæja.. kominn tími á nýtt blogg,
og ég er búin að lesa svona “yfirlit yfir árið” á svo mörgum
síðum, að ég varð að gera eins
Kanski svolítið langur samt..
heh
Í Janúar man ég nú
ekki eftir neitt ofboðslega merkilegt hafi gerst.. ég eyddi mestum
mánuðinum í það að panikka yfir fuglaflensunni sem að ég var
handviss um að myndi stökkbreytast og koma til íslands og ég myndi
deyja!! En það varð víst ekkert úr því og ég er enn sprellilifandi
Ég tók
svo 9 einingar í fjarnámi frá VMA og stóðst þær með príði
J
Febrúar fór svo
aðallega í fylgjast með fréttum um það hvort Silvía Nótt yrði dæmd
úr keppni eða ekki.. Ég fór næstum á límingunum á þessum tíma og
var þessvegna í skýjunum þegar hún vann undankeppnina. Ýmislegt
annað gerðist samt sumt verra en annað.. Litli bróðir minn fór með
sjúkrabíl úr skólanum útaf því að hnéskelin hans rann út á hlið!
Hann eyddi mörgum mánuðum í endurhæfingu og má enn ekki reyna á sig
nema hafa einhverja svaðahlíf sem verndar hnéið :/ Sveindís flutti
svo inn til mín og var þar út maí, það sem stendur aðallega uppúr
frá þeim tíma er sjónvarpsgláp, eldhús-stúss, hlátur, Rent-söngvar
og fl.
Mars byrjaði vel,
því að þann fyrsta mars eignaðist eldri bróðir minn æðislegan
strák. Dag Árna
J
Við Sveindís lenntum
í klóm pólverja-svindlurum og Sveindís lét freistast! Hún býður
þess líklega aldrei bætur!.. Síðast en ekki síst þá var haldin
Árshátíð Norðurmjólkur og ég var í árshátíðarnefnd. Það sem fór
fram á þeirri árshátíð er ekki prenthæft og þessvegna ætla ég bara
að vinda mér í næsta mánuð.
Apríl var stútfullur
af lærdómi, páskaeggjum og fermingum. Litli bróðir minn fermdist,
og ég er ekki ennþá búin að ná því hvað hann er orðinn gamall!
Finnst eins og hann eigi bara að vera úti að leika sér í
sandkassanum ennþá!
Maí einkenndist af
prófum, prófastressi og geðvonskuköstum! Fyrstu prófin mín í meira
en 2 ár, og ég ætlaði sko að standast þau! Útkoman varð miiiikið
stress.. mikill lestur og þið getið spurt Sveindísi um
geðvonskuköstin sem komu í kjölfarið! Ég stóðst hinsvegar prófin og
allt fór vel
Sveindís flutti svo út um miðjann mánuðinn
og ég skellti mér til Reykjavíkur til að hitta hana Pálu frænku
mína
Þar var svaða eurovision teiti og ég skemmti mér
konunglega! Pála.. við verðum klárlega að endurtaka þetta þegar ég
kem suður 
Í mestum hluta af
júní, var ég í sumarfríi og fór þessvegna í ótal
útilegur og hafði það svakagott! Ég, Fanney og Elín fórum í
svaðalegar veiðiferðir niðrá bryggju og ég vil ekki særa neinn, en
Fanney... þú skíttapaðir í þessum veiðikeppnum! Heh
Byrjaði svo
í sumarskóla í þýsku203, og náði henni (rétt slefaði
reyndar..:/)
Í júlí tók ég mig
til og rústaði eldhúsinu mínu! Reif niður eitt stykki vegg og reif
innréttinguna í burtu og setti nýja í staðinn. Reyyyndar gerði ég
þetta ekki ein. Eiginlega var ég bara hjálparkokkur sem gerði mest
gagn í því að þvælast ekki fyrir! Ég skellti mér þessvegna bara til
Danmerkur og var þar í einhverja 10 daga. Fór með stubbunum mínum
tveim og skemmti mér konunglega þarna úti 
Ég kom svo heim 3.
Ágúst og fór að sjálfsögðu beint á versló-djamm!
Það var náttúrulega snilld eins og alltaf. Oddeyrarskóla-reunion
var haldið og það var allveg frábært að hitta alla! Suma hafði ég
ekki séð síðan í 10. bekk og margir höfðu breyst svaðalega mikið á
þessum 5 árum. Ég varð svo 21. árs í þessum mánuði og hélt upp á
það með pompi og prakt! En ekki hvað?! 
Í september byrjaði
ég svo í dagskóla í VMA. Eða í lok ágúst, man það ekki allveg.. það
var skrítið, en fínt að mæta aftur í skólann eftir svona langa
pásu. Við Fanney fórum í útivistaráfanga og þurftum að fara í
svaðaútilegu frá víkurskarði yfir í Vaðlaheiði! Ég hélt að ég myndi
ekki segja þetta, en djöfull var þetta skemmtileg ferð! Reyndar
fannst mér það ekki þegar ég var nær dauða en lífi í einhverri
mýrinni þarna lengst inní einhverjum dal. En þetta var bara
andskoti skemmtilegt og ég veit að Fanney er allveg sammála mér
þar!
Október var
eiginlega allveg dauður. Ég reyndar skrapp til Reykjavíkur í til
hennar Ólafar, og við skemmtum okkur konunglega!! Var búin að sakna
hennar allveg heilan helling og allveg kominn tími og smá hitting!
Hún dró mig í flugmanna partý, og ég held grínlaust að ég hafi
aldrei skilið svona lítið um það hvað fólk var að tala! Og ég hef
djammað í danmörku, og ég sver það.. ég skildi meira þar heldur en
í þessu partýi.. heh.. þetta var samt allveg svaka skemmtilegt

Nóvember var ekki
merkilegur mánuður.. ég byrjaði reyndar á því að fara suður.. fékk
far með Sunnu, og við skemmtum okkur konunglega á leiðinni, þrátt
fyrir ógeðisveður aðra leiðina.. restin af mánuðinum fór í
verkefnavinnu og prófavesen. Merkilegt hvað kennarar skella alltaf
risa verkefnum rééétt fyrir lokaprófin! Allveg típískt.
Fyrrihluti desember
fór í prófalestur og próf! Ég fór reyndar bara í 3 lokapróf, svo að
þetta var voðalega afslappað miðað við aðrar annir. Náði öllu að
sjálfsögðu
Strax eftir prófin byrjaði ég svo að vinna í
samlaginu, í mínu heittelskaða skyri! .. alveg merkilegt hvað ég
enda alltaf aftur og aftur þarna..
Mér fannst þetta ár samt bara allveg
ágætt og held að þetta ár verði það bara líka! Eða ég vona það! Ég
stefni á það að útskrifast í vor, og var svo að spá að skella mér
suður
Vonandi rætist bara úr því
Gleðilegt ár allir! 